Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Mútta 6Tug

Jæja mikið var að maður drattast til að blogga smá :)

Mikið hefur sosum verið um að vera eins og venja er.  Veðrið hefur reyndar verið það sem mest hefur verið að pirra mann þetta sumarið.  Endalaus kuldi og vindur.  Hvar er sumarið eiginlega ???

Nú um helgina var haldið teiti en mútta varð 60 ára þann 23. Júlí og var nokkrum ættingjum og vinum boðið að koma í sveitina og borða góðan mat.  Þar sem veðrið er svo sjálfstætt var ekki nokkur leið að panta gott veður og vera viss um að það gengi eftir að við héldum matarveisluna í hlöðunni.  Heppnaðist það ljómandi vel en hefði mátt vera hlýrra.  Veðrið var sosum ágætt ja nema það hellirigndi um það leiti sem allir voru að flytja sig upp í hlöðu til að borða.

Kjélla fékk svo mikið af góðum gjöfum að hún er enn að baða sig í pakkaflóðinu.  Hún var alsæl með daginn.   Svo var reyndar smá auka afmæli fyrr um daginn (laugardaginn 25. Júlí ) en systurdóttir mín varð 4ra ára og fékk hún auðvitað köku með kertum og pakka í tilefni dagsins. 

IMG_7441Una Bella 4ra ára :)

IMG_7460Veisluborðið.IMG_7467

Matseðillinn hljómaði svo :

Pækilkryddað læri með kartöflusalati, piparostarjómasveppasósu og fersku salati.

Svo auðvitað pylsur fyrir börnin.

Eftirréttur: Skyrterta með berjum og kaffi.

Bara gott :)

IMG_7447Mútta og sytir hennar.

IMG_7464Beðið eftir matnum :)

IMG_7474Kátt að hjalla :)

 


Sorglegt.

Valhöll brennur

Já maður á nú margar góðar minningar um þetta hús.


Gulrótarkaka :)

Jæja var víst búin að lofa þessu fyrir löngu svo það er víst betra að fara að standa við það :)

Gulrótarkaka.

300 gr. Púðursykur

4 stk. egg

250 gr. hveiti

2 tsk. lyftiduft

1 tsk. matarsóti

1/2 tsk. salt

2 tsk. kanill

1/2 tsk múskat

2 tsk. vanillusykur

100 gr. valhnetur (saxaðar)

300 gr (ca) rifnar gulrætur

2 dl. matarolía

Sumir setja 1/2 dós af kurluðum ananas líka en mér finnst það ekki gott svo ég sleppi því eins dregur það úr geymsluþolinu.

Þeyta egg og púðursykur vel.  Svo er öllu nema gulrótum og hnetum bætt útí og hrært saman.  Að lokum bætið hnetum og gulrótum og hrærið með sleif.  Bakað í 1 klst. á 160°C  (passar í stórt springform eða ferkantað og 2föld er passleg í heila ofnskúffu)

Ostakrem.

375 gr. rjómaostur hreinn

750 gr. flórsykur

1 tsk. vanilludropar

1 msk. sítrónusafi (ef vill)

Gott er að henda kökunni í frost til að fá kremið til að stífna svo þarf að geyma hana í kæli.

DSC04591 

Verði ykkur að góðu :)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband