Tveir starfsmenn spilavítis stóðu við spilaborð þegar ákaflega
Hugguleg ljóska kom aðsvífandi og kvaðst ætla að veðja 20.000 dollurum á eitt númer í borðinu. Ég vona að ykkur sé sama sagði ljóskan, en ég er alltaf heppnari þegar ég er nakin og þar með svipti hún sig klæðum, studdi á spilahnapp og skrækti nú er lag, mig vantar ný föt!
Síðan hoppaði hún hæð sína og hrópaði
Yes, yes, ég VANN, ÉG VANN!, þreif fötin sín ásamt öllum peningunum sem voru á borðinu og hvarf á braut.
Gjafararnir störðu undrandi hvor á annan, að endingu gat annar
þeirra stunið upp: Á hvaða tölu veðjaði hún?
Hinn svaraði: Það veit ég ekki, varst þú ekki að fylgjast með því?
LÆRDÓMUR: Ljóskur eru ekki allar heimskar!