Að stoppa í Brúarskála og ..
..fá sér kaffi og soðbrauð.
..fá sér kjötsúpu með heimabökuðu rúgbrauði.
..fá sér hamborgara, franskar og kók.
..fá sér bensín eða olíu.
Því skálanum verður lokað í kvöld í síðasta sinn.
Blessuð sé minning hans.
10.8.2008 | 10:31
Að stoppa í Brúarskála og ..
..fá sér kaffi og soðbrauð.
..fá sér kjötsúpu með heimabökuðu rúgbrauði.
..fá sér hamborgara, franskar og kók.
..fá sér bensín eða olíu.
Því skálanum verður lokað í kvöld í síðasta sinn.
Blessuð sé minning hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.8.2008 | 14:12
Ella var á golfæfingu dag einn er hún hitti illa við átjándu holu og golfkúlan lenti beint inni í runna.
Þegar hún ætlaði að fara að skríða eftir henni sá hún hvar lítill sætur froskur var fastur í gildru, um leið og hún losaði hann sagði froskurinn: Nú færð þú þrjár óskir uppfylltar en ég verð að segja þér frá því að það sem þú óskar þér fær maðurinn þinn tífalt meira af. Ella sem var mjög glöð og hugsaði með sér að það yrði allt í lagi.
Fyrsta ósk hennar var að hún yrði fallegasta kona heims. Froskurinn varaði hana við og sagði henni að þá yrði maðurinn hennar einning fallegasi maður heims. Ella hugsaði með sér að það yrði fínt, hún væri hvort sem er fallegasta konan og að maðurinn hennar hefði ekki augun af henni. KAZAM!!! og hún varð að fallegustu konu heims.
Annari ósk sinni varði hún í að biðja um að verða ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn: Þá mun maðurinn þinn verða 10 sinnum ríkari en þú. Ella svaraði: það er allt í lagi, allt hans er mitt og allt mitt er hans. KAZAM!!! og hún varð ríkasta kona heims.
Þá sagði froskurinn: Jæja þá áttu aðeins eina ósk eftir, hver er hún?
Ella svaraði: Ég vil fá vægt hjartaáfall.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.8.2008 | 15:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.8.2008 | 09:56
Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá
heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land.
Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og
þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétt
hjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort
þeir mættu gista.
Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er
nýlega orðin ekkja útskýrði hún , og ég er hrædd um að nágrannarnir færu
að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í.
Ekki hafa áhyggjur, sagði Jói, við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að
gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax.
Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært.
Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til
skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi.
U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu.
Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var
frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu.
Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: Siggi, Þú manst eftir fallegu
ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan. Já
sagði Siggi. Ég man eftir henni.
Getur verið hélt Jói áfram að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið inn
í hús og laumast upp í rúm til hennar.
Já sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu
saman, ég verð að viðurkenna það að ég gerði það.
Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?
Siggi eldroðnaði, Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst.
En af hverju spyrðu?
Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa upp
öndina og arfleiddi mig að öllu sínu.
Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.8.2008 | 10:52
Hver kannast ekki við að börnin séu látin teikna í skólnum eitthvað úr sínu lífi? Og hver kannast ekki við að börnin séu látin teikna framtíðina?
Hvað ætlar þitt barn að verða þegar það er orðið stórt????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.8.2008 | 11:58
Elsku Erla mín!
Til hamingju með daginn og nýja heimilið. Vonandi verður dvölin á nýja staðnum þér gæfurík og ánægjuleg.
Knús í klessu mín kæra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.8.2008 | 18:41
Afgreiðslumenn gera það umbúðalaust.
Augnlæknar gera það sýnilega.
Einstein gerði það afstætt.
Einstæðir gera það að skilnaði.
Fjallgöngumenn gera það hátt uppi.
Flugmenn gera það í loftinu.
Fréttamenn gera það stuttlega.
Galdramenn gera það óskiljanlega.
Grínistar gera það með glöðu geði.
Gullsmiðir gera það fínlega.
Göngugarpar gera það rösklega.
Hárgreiðslufólk gerir það snyrtilega.
Heimspekingar gera það spyrjandi.
Hermenn gera það í takt.
Kennarar gera það af kunnáttu.
Kóngar gera það höfðinglega.
Íhaldsmenn gera það reglufast.
Ívan gerði það grimmilega.
Lauslátir gera það frjálslega.
Ljósmyndarar gera það í myrkri.
Málfræðingar gera það - að sögn.
Popparar gera það taktfast.
Prentarar gera það hástöfum.
Róttækir gera það fram á rauðan dag.
Sérfræðingar gera það ítarlega.
Sóldýrkendur gera það berlega.
Stærðfræðingar gera það hnitmiðað.
Svæfingarlæknar gera það ómeðvitað.
Tortryggnir gera það grunsamlega.
Verkfræðingar gera það vélrænt.
Þjóðverjar gera það að einhverju marki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.8.2008 | 10:31
Fangi sleppur úr fangelsi þar sem hann hefur verið í 15 ár. Á flóttanum finnur hann hús og brýst inn í það til að leita af peningum og byssum, en finnur bara ungt par í rúmi.
Hann skipar stráknum að fara úr rúminu, og bindur hann fastann á stól. Síðan fer að hann að stelpunni til að binda hana. Á meðan hann er að binda stelpuna upp í rúmi fer hann uppá hana, kyssir hana á hálsinn og fer svo inná baðherbergi.
Á meðan hann er þar segir strákurinn við stelpuna: Hey þessi gaur er fangi sem hefur flúið, sjáðu bara fötin hans! hann hefur örugglega verið lengi í fangelsi og hefur ekki séð konu í mörg ár. Ég sá hvernig hann kyssti á hálsinn á þér. Ef hann vill kynlíf ekki segja nei og gerðu bara það sem hann segir þér að gera, veittu honum fullnægingu. Þessi gaur hlýtur að vera hættulegur og ef hann verður reiður drepur hann örugglega okkur bæði.
Verstu sterk elskan, ég elska þig!
Konan svarar Hann var ekki að kyssa á mér hálsinn, hann var að hvísla að mér og sagði að hann væri hommi og fannst þú vera mjög sexy og spurði hvort við ættum eitthvað vaselín inná klósetti.
Vertu sterkur ég elska þig líka!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)