Færsluflokkur: Bloggar

Skrapp......

......suður í gær.  Tilefni: Jarðaför.   En verið var að jarðsetja konu sem fjölskyldan þekkti vel til.  Blessuð sé minning hennar.
Alveg er þetta nú sama sagan.....maður hittir fólk alltaf við jarðafarir.  Og það virðist vera að það sé nú bara ekki hisst nema jú við brúðkaup og jarðafarir.  Svo ótrúlegt sem það virðist nú vera ......en satt er það.  Þarna var fólk sem ég hafði ekki hitt síðan fyrir 19 mánuðum síðan þegar amma var jörðuð.   En svona vill þetta fara þar sem enginn hefur orðið tíma til neins í dag.  Það er svo önnum kafið við eigið líf ......já og ég líka.  Maður fer suður til að sinna eigin þörfum en gefur sér engann tíma í að hitta fólkið sem maður þekkir og vill þekkja mann.  Nútíminn er bara að taka mann í rassgatið og notar maður bara netið til að eiga samskipti við fólk.  Einstaka símtal þó það sé nú frekar ólíklegt nema að mikið sé í gangi. 

Nú en þar sem maður er nú ekki uppfullur af sniðugum smellum í dag ætla ég ekki að hafa þetta lengra að sinni.
13309501563p6388 

Ný vika....

Jæja þá er komin ný vika enda ekki við öðru að búast því tíminn líður eins og hann fái sko vel greitt fyrir ......já ekki kreppan á þeim bænum.  Ó nei.  En síðustu dagar hafa farið í að græja kjötið sem á að reykja og verður nú ráðist í að pækla í dag.  Svo þarf þetta að lyggja í pæklinum ca. 6 daga eða svo.  Nú svo verður farið að smóka jólakétið.


Strákarnir fóru í afmæli um helgina á næsta bæ en þar var 2falt afmæli í gangi og var heljarinnar fjör.  Enda allur skólinn mættur á einn stað.  Svo verður þetta víst næstu helgar.   Úff ég er nú bara fegin að ég lét mig hafa það að halda afmælið fyrir Jónas í sept.  þó svo maður væri á kafi í fjárragi og kallinn á spítala.  Því það er nú bara þannig að það er ekkert betra að geyma svona.  Enda var litli maðurinn sko ekki að samþykkja það að fresta veislunni neitt.  Var nú alveg nóg að þurfa að fresta um nokkra daga þar sem hann átti afmæli á miðvikudegi en ég hélt veisluna á laugardegi.  Hann var nú ekki alveg sáttur .......ja ekki á meðan hann beið sko.


Annars er allt fínt bara, kallinn er bara góður og fór hann í tékk á Akureyri í síðustu viku og losnaði víð spelkuna.  Sem hann var farinn að bíða spenntur eftir þar sem hún var farin að bögga hann.   Og nú er bara málið að halda áfram að passa sig en hann má fara að ganga meira en ekki beita fætinum því það er ekki þorandi enn.  Annars er dáldið skondið mál varðandi kallinn minn.  Ég þekki mann sem er í góðu sambandi yfir .....ef þið skiljið mig .....hann fær s.s. skilaboð að handan og hann einmitt fékk slík skilaboð þegar ég átti við hann samtal um daginn.....reyndar dáldið síðan sko.  En það barst jú í tal að kallinn hefði slasað sig og farið í aðgerð.  Og þá kom svona djúp þögn í símann og svo sagði hann yfirvegaðri röddu "já hann er í góðum málum, það er fylgst vel með honum"  Ha sagði ég nú bara, en þá einmitt fór hann að segja mér frá því að það væri sko fullt af góðu fólki sem passaði uppá hann.  Og það var sko aukalæknir viðstaddur aðgerðina takk.....jamm virtur bæklunarlæknir sem var á Landakoti.  Ekki amalegt.  Nú jæja svo í dag þegar ég er að úrbeina kjöt sem ég var að fara að hakka hringir síminn og það er einmitt þessi vinur minn en þar sem ég var jú fitug og blóðug á höndunum bað ég manninn minn bara um að svara í símann meðan ég væri að þvo mér.  Og spjalla þeir smá stund ......og fékk minn maður þau skilaboð .....að handan..... að hann væri sko að gera meira en hann mætti.  Já takk hann fékk sko bara einn gúmorenn beint í æð.  Já svona er það nú, en ekki finn ég eða kallinn mikið fyrir því að fylgst sé með okkur en það er gott til þess að vita að það er vakað yfir manni.  Svona er eitthvað sem maður trúir ekki alveg fyrr en það feisar mann og maður getur ekki þrætt.  Því sumt er jú þannig að það vita ekki allir.  Þórhallur miðill kjaftaði t.d. í tengdó þegar ég var ólétt af Guðveigu hummmm.... neyðarlegt ha.?

Jæja farin að sofa, góða nótt kæru vinir og dreymi ykkur vel.

gn005  


Besta gjöfin.....

618033608_1202800714_40421-GOODMORNING%201

Tær snilld.

Fjölskyldan sat við matarborðið á sunnudagskvöldi.
“Pabbi, hvað eru margar gerðir af kvenmannsbrjóstum til?” spurði sonurinn allt í einu.
“Þær eru þrjár, sonur sæll.
Þegar kona er á þrítugsaldri eru brjóst hennar eins og melónur, kringlótt og stinn.
Á fertugs- og fimmtugsaldrinum eru þau eins og perur, enn falleg en farin að lafa svolítið.
Þegar konan er komin yfir fimmtugt þá má líkja brjóstum hennar við lauka. 
“Lauka?” spyr sonurinn
“Já,  þú horfir og þú grætur !
“Smáþögn.
“Mamma, getur þú sagt mér hve margar tegundir af tippum eru til” spurði dóttirin.
Mamman brosti leit á eiginmanninn sinn og sagði:
“Maðurinn gengur í gegnum þrjú stig.
Þegar að hann er á þrítugsaldri er limurinn hans eins og Eik, öflugur og harður.
Á fertugs- og á fimmtugsaldri er hann eins og Birki, sveigjanlegur en traustur
og þegar hann er kominn yfir fimmtugt má líkja honum við jólatré!”       
“HA!, jólatré?” spyr dóttirin undrandi.
“Já hann þornar hratt upp og kúlurnar eru bara til skrauts!” 

Auglýsingar

Allan fjandan dettur fólki í huga að auglýsa eftir....! augl´.Ég meina .......halló og skyldi einhver hafa svarað?good_morning-fixb-w500-h500good_morning_502094046_1204889990_w0106

Brauð

Mjög gott brauð sem ráðskonan í skólanum bakar.  Sérlega gott á ostaborðið.

6 bollar hveiti

1 tsk salt

2 msk þurrger

1/2 dl olía (til dæmis frá fetaost mjög gott )

volgt vatn

Láta hefa. Skifta í 6 brauð og láta hefa aftur.


Einn gullmolinn enn.....

662677986_1203552986_492182662_fc79ea6b55[1]

Jáhá.....

678814486_1203839920_ostrich21111

Helgin

Ekkert merkileg sosum frekar en venjulega.  Nema kannski það að við réðumst í að gera slátur á föstudaginn .......eða sko við gerðum bara lyfrarpylsu þar sem ekki var búið að redda blóði í blóðmörinn.  En þetta er jú allur dagurinn sem fer í svona lagað .......þ.e. að sníða og sauma vambirnar.  Verkið er nánast búið þegar það er búið.  Svo var auðvitað testað í hádeginu á laugardag.  Og Gunnar Þorgeir var svo happý með að fá slátur að hálfa hefði nú alveg dugað.  En Jónas Helgi ........vill ekki lifrarpylsu takk.  Nú og Guðveig Fanney ja henni klýjaði nú hreinlega bara við henni.  Sem ég skil sosum mæta vel því ég borðaði ekki lifrapylsu fyrr en ég var orðin fullorðin því mér fannst hún barasta vond.  Sem kom á daginn að var eðlilegt að ég sótti ekki í hana því hún er jú mjög járnrík og þar er ég sko milli því það er eitthvað sem ég á nóg af.  Svo var kíkt í húsin með litlu skottuna þar sem veðrið var sérdeilis gott og milt.  Já og nú er maður sko ekki lengur hræddur né tregur við pollana sko.  Já nei það þurfti sko að testa hvern einn og einsasta á leiðinni út í hús.  " meiji pollinni"

Annars allt gott bara og nú er dúllað við að sjóða tólg og hamsatólg.  Alveg ómissandi með saltfiski maður.  Svo nota ég tólgina að meirihluta þegar ég steiki punga og parta.  Svo fer maður að undirbúa sig fyrir að reykja jólahangikjötið.  Ummmmmm......

Jæja best að fara að gefa liðinu að borða svo í sturtu og hátta.  Skóli á morgun.  Já og ekki má gleyma því að það þarf að vakna eldsnemma því kallinn er að fara á Akureyri á morgun í tékk á löppinni. 

DSC03789

Jónas fékk klippingu í vikunni sem leið.  Fyrir.

DSC03791

Eftir.

DSC03793

Sæt saman.

DSC03782

Verið að herma eftir pabba sínum að hvíla löppina upp á púða hehehe....

DSC03829

Kelirófustund.  En það hópast alltaf rollur að krökkunum þegar þau nenna að sinna þeim.

DSC03807

Hér er ein af þeim sem urðu spakar í dag.

ros005  


Þú ert samt vinur minn.

Þú gætir verið??


Þú gætir verið sköllótt/ur

Þú gætir verið svört/svartur

Þú gætir verið grænmetisæta

Þú gætir verið strákur

eða stelpa

Þú gætir verið feit/ur

Þú gætir talað mikið

Þú gætir haldið að þú sért kóngur

eða drottning

Þú gætir verið vond/ur

Þú gætir verið blóma aðdáandi

Þú gætir verið í sirkus

eða unnið sem plötusnúður

Þú gætir verið skrítin/n

Þú gætir verið svöl/svalur

Þú gætir verið með skrítinn matarsmekk

Þú gætir verið að æfa

eða verið hippi

Þú gætir verið kúrekastelpa

eða kúrekastrákur

Þú gætir verið á sleða

eða á bíl

Þú gætir verið með gleraugu

eða krakkakríli


En þú ert samt vinur minn.

hjartagjafir


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband