2.6.2008 | 17:27
Skipti.....
Hann sagði . .. Ég skil ekki af hverju þú ert í brjóstarhaldara, það er ekkert til að halda. Hún svarar - Þú ert í nærbuxum, er það ekki? Hann spyr .. .. .Eigum við að reyna að skipta um stellingu í kvöld? Hún svarar . . Það er frábær hugmynd - þú stendur við strauborðið á meðan ég sit í sófanum. Hann spyr . . . Hvað ertu búin að gera við alla matarpeningana sem ég lét þig fá? Hún svarar . Snúðu þér á hlið og líttu í spegil! Skrifað á vegg á kvennaklósetti . .. "Maðurinn minn eltir mig hvert sem ég fer" Skrifað rétt fyrir neðan . " Nei það er ekki satt" Spurning. Hvernig sést að maður er að skipuleggja framtíðina? Svar. Hann kaupir 2 kassa af bjór. Spurning. Af hverju eru giftar konur feitari en ógiftar? Svar. Þegar þær ógiftu koma heim og sjá hvað er í ísskápnum - fara þær í rúmið. Þegar þær giftu koma heim og sjá hvað er í rúminu - fara þær í ísskápinn. Maðurinn spyr guð: "Af hverju skapaðirðu konuna svona fallega?" Guð svarar: "Svo þú myndir elska hana." En Guð, "Af hverju hafðirðu hana svona heimska?" Guð svarar: "Svo hún elski þig." |
Athugasemdir
lov jú sko! endalaust hægt ad koma og fá hláturskast hjá thér,takk fyrir thad. Eigdu gódan dag
María Guðmundsdóttir, 2.6.2008 kl. 18:51
Skagaknús...
SigrúnSveitó, 2.6.2008 kl. 19:49
haha!!!!
Þórhildur Daðadóttir, 3.6.2008 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.