Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
28.3.2009 | 17:16
Update.....!
Jæja kannski maður fari nú að blogga eitthvað misgáfulegt ? Sko annað en hrukkuvaldara. Þó það sé nú ósköp hollt að hlæja af og til.
Nú eins og kom fram fyrir nokkrum bloggum síðan fór ég ásamt börnum í fremingu um daginn og gékk sú ferð vel þó svo að veðrið hafi reynt að hræða okkur á heimleiðinni. En þar sem maður er jú alinn upp í vetrarríki þá þarf nú dáldið meira til að hræða mig. Og komumst við heim án teljandi vandræða. Fermingarbarnið.......eða stúlkan .....því hún telst jú ekki barn lengur.....var gullfalleg hin prúðasta stúlka. Ánægð með daginn sinn svo best ég veit. En eins og allir vita eru þessi blessuð börn orðin æði kröfuhörð á þessum degi því miður. Verð að lauma hér inn mynd af henni.
Nú svo er yfirstaðin Árshátíðin í skólanum á Borðeyri. Tókst hún mjög vel og var virkilega vönduð og vel æfð atriði. Fá og góð. Krakkarnir tóku rómann úr Kardimommubænum og svo var Mamma Mía show. Já það dugar nú ekkert minna í sveitinni sko.
Þá er búið að ræna Soffíu frænku.
Hvar er ..... mín? Hvar er ..... mitt? Og hitt?
Já nei Soffía vill ekkert aftur heim.
Minn maður var nú ekki á því að taka þátt í þessum söng þar sem honum fer illa að bíða og dagvistunarbörnin voru á milli stóru atriðanna. Og púkinn náði yfirhöndinni.
Látum þetta duga.
Ciao.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.3.2009 | 15:23
Sæðisprufan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.3.2009 | 12:47
Gardínur
Ljóska nokkur kom í í vefnaðarvöruverslun þar sem seld eru gluggatjöld.
Hún segir við afgreiðslukonuna: Ég ætla að fá bleik gluggatjöld sem myndu passa fyrir skjáinn á tölvunni minni .
Afgreiðslukonan varð hissa og svaraði: En þú þarft ekki gluggatjöld á tölvuna
Þá svaraði ljóskan:
Halló Ég er með Windows !!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2009 | 12:35
Grái fiðringurinn.
Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:
Heyrðu elskan fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum
á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju
kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.
Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og
50 tommu flatskjá en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið
með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !
Ég verð samt að játa að ég á skynsama konu.
Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:
Ekki vandamálið : Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu !
Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !
Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.3.2009 | 18:23
Blómlegur gluggi !
Svo sannarlega er gaman að hafa svona blómlegt í glugganum. Líka þar sem það er jú vetur.
Þessi 3ji er nú ekkert að flýta sér að springa út.
Nennir sko ekki að vera kyrr. Og fór því bara.
Nú svo verður farið á flakk um helgina en það stendur til að skreppa í fermingu.......já dáldið snemmt að mínu mati en svona er þetta bara í hinni stóru Rvík ......margir krakkar og tíminn því langur sem fer í fermingar. Ég er nú meira fyrir að þetta sé um páskana en það er bara ég. Nú eða þá bara eftir sauðburð.
Ciao
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.3.2009 | 13:34
Allt í blóma.
Nú eru blómstrandi dagar í kotinu. Smá montmyndir .....því það blómstrar venjulega ekki neitt í glugganum hjá mér. Virkar ekki fyrir mig að hafa fulla glugga af flottum blómum því þau bara deyja. En nú er eitthvað að gerast. búin að eiga þennan kaktus í 2 ár og þegar ég keypti hann var hann að byrja að blómstra en hætti auðvitað við. Amarillisinn er nú bara í fóstri hjá mér en mútta á hann og hann blómstrar nú alltaf af og til blessaður. Er með 3 og þessi er hvítur.
Dóttirin var farin að pilla af honum þessi flottu rauðu kúlur og endaði hann í gólfinu nokkrum sinnum en lét það nú ekki á sig fá. Setti hann í stærri pott og þyngri og hann dafnar svona líka ekkert smá.
Þessi verður flottur á morgun :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2009 | 10:36
Snjór og alvara.
Jæja það kom að því að maður fengi alvöru vetur.....en hvað skyldi hann stoppa lengi í þetta skiptið ? Þriðjudagurinn byrjaði ósköp sakleysislega ......eða því sem næst. Hér var jú farið snemma á fætur því von var á "frænda" til að fósturvísatelja rollurnar. Skömmu eftir að strákarnir fóru í skólann og byrjað var að telja fór veðrið að setja í brýrnar og uppúr hádegi var bara kominn þreifandi bylur takk. Sá vart á milli húsanna hér á hlaðinu. Nú um kl. 14:00 var farið að koma stress í skólann og var því hugað að koma börnunum fyrr heim sem var nú ekki mikið fyrr því það tók jú tíma að þvælast í engu skyggni og ófærð. En svo bara eins og hendi væri veifað þá datt þetta niður ......já rétt eftir að skólabíllinn kom. Maður var nú vanur svona veðraköstum sem krakki og ekki var svona mikið stress þá er eitthvað var. En síðan eru jú liðin mörg ár hehehehe...... En strákarnir fagna þessum mikla snjó sem stoppar og virðist ekki vera á förum heldur virðist hann vaxa og dafna vel. Snjóhúsið sem þeir grófu fylltist nú reyndar af snjó í bylnum en mig grunar nú að það standi til að gera það upp. Enda er hrúgan sem grafið var í orðin enn stærri ......já ætli þetta flokkist bara ekki sem blokk hér eftir svo stór er hrúgan orðin. En nú er svooooo flott veður ......bara kalt. En sólin er sko ekki að spara sig og dauðlangar mann af setjast á sleðann og bruna bara.
Og svo fá sumar lit sko.....t.d. þær sem eru bara með 1 eða þær sem eru með 3. Og svo þær sem ekki eru með neitt
Guðveig var nú ekki að nenna að hanga inní fjárhúsi sko. Vildi ekki myndatöku. Vildi bara fara út að labba í snjónum takk.
Nú snjórinn vex og hrúgurnar með. Gaman að leika á þeim og vera á stærð við CASE.
Og þarna er hrúgan sem hýsir snjóhúsið. Orðin c.a. helmingi stærri en þegar þeir byrjuðu.
Dágóður slatti kominn í garðinn.
Og þessi heldur að það sé Nóvember.
Ciao.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.3.2009 | 15:30
Dánartilkynning
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)