Komið á framfæri.

Langar að benda á fyrir vinkonu mína !

Kæru allir!
 
Sigga vinkona okkar dó úr brjóstakrabbameini þann 14 janúar síðastliðinn, aðeins 4 dögum eftir að hún varð 40 ára.. frá eiginmanni sínum og fjórum börnum þeirra á aldrinum 1 árs til 16 ára.
 
Sigga barðist hetjulega ..alltaf vongóð ..jákvæð.. og dugleg ..og lifir í hjarta okkar sem sigurvegari þrátt fyrir að hafa þurft að kveðja svona langt langt fyrir aldur fram.
 
Þau ykkar sem þekktu hana ..eða könnuðust við ..spyrjið oft eða veltið fyrir ykkur ..hvernig gengur fjölskyldunni að fóta sig.. eftir fráfall hennar.
 
Við vinkonurnar heyrum í og höfum hitt fjölskylduna...
 
Jón Grétar er nú orðin 17 ára og kominn með bílpróf.. og er í framhaldsskóla
Kata er komin í framhaldsskóla og stundar fimleika af miklu kappi.. hún verður sweet 16 í sumar
Sædís er nýorðin 11 ára stundar fimleika og er afskaplega hjálpleg við þá yngstu
Jakobína Björk ..verður 2 ára í sumar. Hún er farin að æfa sig mikið að tala. Hún er hjá dagmömmu og bíður eftir að komast á leikskóla
 
Jónas ..sem vinnur við garðyrkju verður 40 í haust.. er að standa sig vel sem einstæður 4-ra barna faðir.. hann hefur forgangsröðina á hreinu ..börnin númer 1..2..og 3! Einnig hefur hann lagt kapp á að klára húsið ..sem þau hjón lögðu svo hart að sér að eignast og gera upp.
 
Sigga vann með einni ástsælustu leikkonu landsins.. Eddu Björgvinsdóttur og tókst með þeim góður vinskapur. Hefur sú góða kona nú ákveðið að halda styrktarsýningu og allir sem að verkinu koma ..gefa vinnu sína.. og Borgarleikhúsið lánar hús sitt endurgjaldslaust.. verkið er "Brilljant skilnaður" og verður sýningin í Borgarleikhúsinu þann 25 maí klukkan 20:00 miðasala fer fram í Borgarleikhúsinu sími 5688000
 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
 
Ragna og Gulla Sigguvinkonur og Edduaðdáendur
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ástarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.5.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Anna Guðný

Frábært framtak. Gangi ykkur vel. Heitir þú þá Ragna? Ætlaði að vera búin að minna þig á að kynna þig nú almeininlega fyrir bloggvinkonu þinni.

Netfangið er: ollana@simnet.is

Anna Guðný , 14.5.2008 kl. 23:30

3 Smámynd: JEG

Já þetta er frábært framtak en því miður kemst ég ekki vengan anna. Nei ég er ekki Ragna. Þú átt póst Anna Guðný.

JEG, 15.5.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband