Kennslustund

Lífsreglur - Stórir Steinar.

 


>
>Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp
>viðskiptafræðinema. Til að koma meiningu sinni almennilega til skila, þá
>notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei.
>
>Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki, þá sagði
>hann: “Jæja, þá skulum við hafa próf.” Hann tók upp 5 lítra krukku með
>stóru víðu opi, og setti hana á borðið fyrir framan sig. Svo tók hann um
>það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom þeim fyrir í krukkunni,
>einn af einum.
>
>Þegar krukkan var full, og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana, þá
>spurði hann: “Er krukkan full?” Allir í bekknum svöruðu: “Já.”
>
>”Jæja?” sagði hann. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl.
>Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið sem
>orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna. Svo
>spurði hann hópinn aftur:
>
>”Er krukkan full?” Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara.
>”Sennilega ekki,” svaraði einn þeirra.
>”Gott!” svaraði sérfræðingurinn. Hann teygði sig undir borðið og tók upp
>fötu af sandi. Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll
>holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna.
>
>Enn spurði hann: “Er krukkan full?” “NEI!” æptu nemendurnir.
>Aftur svaraði hann: “Gott!”
>
>Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg
>full.
>Svo leit hann á bekkinn og spurði: “Hver er tilgangur þessarrar
>sýnikennslu?”
>Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði, “Tilgangurinn er að
>sýna, að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er, ef þú virkilega
>reynir, þá geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!” “Nei.” Svaraði
>sérfræðingurinn. “Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem
>þetta dæmi kennir okkur er þessi: Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst,
>þá kemurðu þeim aldrei fyrir.”
>
>Hverjir eru ’stóru steinarnir’ í þínu lífi? Börnin þín? Fólkið sem þú
>elskar? Menntunin þín? Draumarnir þínir? Verðugt málefni? Að kenna eða
>leiðbeina öðrum? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n)
>þig? Heilsa þín? Maki þinn.
>Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst, eða þú munt aldrei koma þeim fyrir.
>Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) þá
>fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt
>aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í
>þínu lífi (stóru steinarnir).
>Semsagt, í kvöld, eða í fyrramálið, þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu,
>spurðu þig þá að þessarri spurningu: “Hverjir eru ’stóru steinarnir’ í mínu
>lífi?” Settu þá svo fyrst í krukkuna.

hugs361


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband