Update.....!

Jæja kannski maður fari nú að blogga eitthvað misgáfulegt ?  Sko annað en hrukkuvaldara.  Þó það sé nú ósköp hollt að hlæja af og til. 

Nú eins og kom fram fyrir nokkrum bloggum síðan fór ég ásamt börnum í fremingu um daginn og gékk sú ferð vel þó svo að veðrið hafi reynt að hræða okkur á heimleiðinni.  En þar sem maður er jú alinn upp í vetrarríki þá þarf nú dáldið meira til að hræða mig.  Og komumst við heim án teljandi vandræða.  Fermingarbarnið.......eða stúlkan .....því hún telst jú ekki barn lengur.....var gullfalleg hin prúðasta stúlka.  Ánægð með daginn sinn svo best ég veit.  En eins og allir vita eru þessi blessuð börn orðin æði kröfuhörð á þessum degi því miður.  Verð að lauma hér inn mynd af henni.

DSC04566 Myndar fólk :)

Nú svo er yfirstaðin Árshátíðin í skólanum á Borðeyri.  Tókst hún mjög vel og var virkilega vönduð og vel æfð atriði.  Fá og góð.  Krakkarnir tóku rómann úr Kardimommubænum og svo var Mamma Mía show.  Já það dugar nú ekkert minna í sveitinni sko.

DSC04597Tobías í turninum.

DSC04594Hópsöngur.

DSC03867Þá er búið að ræna Soffíu frænku.

DSC03860Hvar er ..... mín? Hvar er ..... mitt? Og hitt?

DSC04607Já nei Soffía vill ekkert aftur heim.

DSC03894Minn maður var nú ekki á því að taka þátt í þessum söng þar sem honum fer illa að bíða og dagvistunarbörnin voru á milli stóru atriðanna.  Og púkinn náði yfirhöndinni.

DSC04615Abbashow.

DSC04619all over....

DSC04624allir.

Látum þetta duga.

Ciao.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

greinilega verid hin besta skemmtun  gódar myndirnar af listafólkinu. Til hamingju med frænkuna. hér lidur ad "stóra" deginum...úha..

og hér er sko ekkert komid vor heldur....gekk á med heljarinnar haglélum i gær...djøs leidindi bara.

Hafdu góda helgarrest, knús og kram til thin

María Guðmundsdóttir, 28.3.2009 kl. 17:54

2 Smámynd: Renata

Mjög fallegar myndir hjá þér, gaman að skoða það. Þú getur verið stolt af börnum og unga fermingadömu.

betstu kveðjur

Renata, 31.3.2009 kl. 13:46

3 identicon

Sá ég ekki glitta í þinn mann þarna einhvers staðar í kokkafötum..greinilega rosalega flott hátið og mikil vinna lögð í sviðsmynd og slíkt...það er alltaf svo gaman að þvi sem börnin eru að gera.....gott að þið komust heil heim... dfgjaædæfk...þetta var kveðja frá Hauki litla en hann er hér í fangi og vill skrifa líka....annars finnast vaxlitir hér í bleyjum...litla skottan mín er nýfarin að vilja teikna og nýfarin að geta teiknað annað en "abstraktverk"...hér fæðast líka aðallega prinsessur og síðhærðar mömmur (ég er ekki síðhærð)...skil ekki þetta prinsessugen í henni dóttur minni því þetta er alls ekki alið upp í henni...virðist vera meðfætt..hún vill ekki ganga í neinu nema bleiku þessa dagana

Sigrún (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 14:28

4 Smámynd: JEG

Jú passar Gunnar var kokkurinn í Kardemommubæ.  Já þetta var alveg frábært hjá þeim.  Betra en í fyrra sko.  Meira lagt í og styttra sem er jú bara í lagi.

Já hann er efnilegur guttinn heheheh....  Guðveig er barasta sjúk í að lita og teikna og gæti eflaust gert það allan daginn.  Hér er nú þetta bleika ekki enn komið en gæti eflaust farið að koma.  Þó er pæjan í henni virk því ég fékk svo mikið af pæjufötum frá sysir minni og það verður nú að nota þetta :)  Og eins fékk hún svo mikið af bleiku þvi það er ekki mikið um stelpur í famelýunni hans...(mágs míns)  eigilega engin bara .....man ekki eftir neinni.  Svo hér þarf mín ekki að ganga í strákafötum :)  Og það er jú nýtt fyrir mér hehehe....svona kjóla og pilsa eitthvað.   En bleikaveikin er víst bráðsmitandi um 3ja ára aldurinn. 

Knús á ykkur skvísur.

JEG, 1.4.2009 kl. 16:18

5 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Ekki svo langt síðan ég var á árshátíð líka hjá heimasætunni. Mjög gaman, hún lék í einhverskonar ævintýrasúpu sem kallaðist Hver er flottastur ? Svo var uppsetning á gamla góða Grease sem yljaði manni um hjartarætur. Eigið góða helgi :-)

Guðrún Una Jónsdóttir, 4.4.2009 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband