Allt komið á fullt :)

 Seinna hollið er langt komið að bera af sæðingunum og hinn venjulegi sauðburður er einnig hafinn ......rólega en þó samt kraftur í þeim heheh....   Samtals eru um 100 bornar sem þýðir að um 700 eru eftir ....aðeins.  Nú fer maður að taka myndavélina út og skjóta á þessi flottu sem koma en það eru komin 3 flekkótt :)  Bara gaman af því.  En læt þetta næja í bili.  Skelli hér inn einum góðum svona til að þið hafið eitthvað að lesa :)

Blindur maður gengur inn á veitingastað og sest niður.

Þjónninn, sem einnig er eigandi staðarins, gengur til blinda mannsins og réttir honum matseðilinn.

“Afsakaðu mig, herra, en ég er blindur og get ekki lesið á matseðilinn. Réttu mér bara skítugan gaffal frá öðrum viðskiptavini, ég skal þefa af honum og svo skal ég panta.”

Eigandinn fer undrandi að hrúgu af skítugum göflum og nær í fitugan gaffal. Hann snýr aftur til blinda mannsins og réttir honum gaffalinn. Blindi maðurinn þefar stíft af gafflinum og segir svo:

“Ah, já, mig langaði einmitt í þetta, kjöthleif og stappaðar kartöflur.”

“Ótrúlegt”, segir eigandinn við sjálfan sig á meðan hann röltir inn í eldhúsið. Kokkurinn reyndist vera eiginkona þjónsins og hann segir henni hvað hafði skeð. Blindi maðurinn lýkur við máltíðina og fer.

Nokkrum dögum síðar kemur blindi maðurinn aftur á veitingastaðinn og þjónninn færir honum óvart matseðilinn.

“Herra, manstu ekki eftir mér? Ég er blindi maðurinn” - “Fyrirgefðu, ég þekkti þig ekki, ég skal sækja skítugan gaffal handa þér.” Sagði þjónninn og náði í skítugan gaffal og rétti blinda manninum. Eftir að hafa þefað vel af gafflinum segir blindi maðurinn:

“Þetta ilmar unaðslega, Ég ætla að fá makkaróní og ost með spergilkáli.” Aftur gengur þjónninn inn í eldhús vantrúaður og hugsar með sér að sá blindi væri að fíflast í honum og segir konunni sinni að næst þegar blindi maðurinn kæmi inn, myndi hann gera örlítið próf. Sá blindi borðar og fer.

Sá blindi kemur aftur á veitingastaðinn ekki svo löngu seinna, en í þetta skiptið sér þjónninn hann koma og hleypur inn í eldhúsið.

Hann segir Maríu, konunni sinni að nudda gaffli við nærbuxurnar sínar áður en að hann færi með gaffalinn til blinda mannsins. María gerir svo og skilar þjóninum gafflinum. Þegar blindi maðurinn sest niður, er þjónninn kominn í viðbragðsstöðu.

“Góða kvöldið, herra, í þetta sinn man ég eftir þér og ég hef hérna tilbúinn gaffal handa þér”

Blindi maðurinn þefar mikið af honum og segir loksins:

“Hey, ég vissi ekki að María ynni hér!?”


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

8oo stykki, það gætu þýtt 1600 lömb...Vá, það verður nóg að gera. Gangi ykkur vel.

Guðrún Una Jónsdóttir, 5.5.2009 kl. 20:07

2 Smámynd: JEG

Ekki alveg svo gott hehehe... en lambafjöldinn er um 1300 því gemlingar eru jú flestir með 1 og svo eru jú slatti af einlembum og fáar þrílembur ....sem betur fer.

takk

JEG, 6.5.2009 kl. 10:31

3 Smámynd: Renata

Vó þú hefur nú mikið að snúast um 1.300 lömb? jiiii....

gengi þér vel elskan :)

Renata, 6.5.2009 kl. 10:40

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

alltaf nóg ad gera hjá thér i sveitinni  vonandi færdu bara helling af lømbum   hafdu thad bara sem best, knús og kram hédan

María Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband