Gulrótarkaka :)

Jæja var víst búin að lofa þessu fyrir löngu svo það er víst betra að fara að standa við það :)

Gulrótarkaka.

300 gr. Púðursykur

4 stk. egg

250 gr. hveiti

2 tsk. lyftiduft

1 tsk. matarsóti

1/2 tsk. salt

2 tsk. kanill

1/2 tsk múskat

2 tsk. vanillusykur

100 gr. valhnetur (saxaðar)

300 gr (ca) rifnar gulrætur

2 dl. matarolía

Sumir setja 1/2 dós af kurluðum ananas líka en mér finnst það ekki gott svo ég sleppi því eins dregur það úr geymsluþolinu.

Þeyta egg og púðursykur vel.  Svo er öllu nema gulrótum og hnetum bætt útí og hrært saman.  Að lokum bætið hnetum og gulrótum og hrærið með sleif.  Bakað í 1 klst. á 160°C  (passar í stórt springform eða ferkantað og 2föld er passleg í heila ofnskúffu)

Ostakrem.

375 gr. rjómaostur hreinn

750 gr. flórsykur

1 tsk. vanilludropar

1 msk. sítrónusafi (ef vill)

Gott er að henda kökunni í frost til að fá kremið til að stífna svo þarf að geyma hana í kæli.

DSC04591 

Verði ykkur að góðu :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

takk fyrir þetta á örugglega eftir að prófa, en er muskatið nauðsynlegt?

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.7.2009 kl. 14:48

2 Smámynd: JEG

Nei múskat er ekki nauðsyn.  Ég blandaði saman 2 uppskriftum.  Múskatið er það lítið að það finnst varla fyrir púðursykri og kanell.  Eins má sleppa hnetum.  Ég nota aldrei anannas en hann er í annari uppskriftinni sem ég mixaði í þessa.  Bæði finnst mér það vont og ananas súrnar fljótt. 

JEG, 1.7.2009 kl. 16:31

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Girnilegt  

hafdu thad gott , knús og kram hédan

María Guðmundsdóttir, 2.7.2009 kl. 08:00

4 Smámynd: Renata

þessi er æði, takk fyrir uppskrift :)

Renata, 6.7.2009 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband