Bara góður

Það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.

Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað hún dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljót að skrifa heim eftir að hún fluttist að heiman og segja sér hvernig kynlífið væri.

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni. Á því stóð aðeins “Myllukökur, Myllubrauð”.
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún var að blaða í DV síðar um kvöldið. En þar stóð “Myllukökur Myllubrauð…… ávallt seðjandi“.
Gamla konan sá að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni. Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”. Kella var nú fljót að leita að 24 Stundum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð “Nýi rúmgaflinn frá okkur…… King size og extra langur“.
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni.
Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið. Í bréfinu stóð aðeins eitt orð “Icelandair”.
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Icelandair í Fréttablaðinu og á endanum fann hún eina. En eftir að hafa lesið auglýsinguna, leið yfir kerlinguna því þar stóð:
“Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... alveg frábær brandari/saga. Mömmur sko - alltaf að forvitnast um ungana sína en hérna hefði mamma gamla mátt slaka á og leyfa stúlkunum bara að lifa. En gaman af þessu sko! Takk fyrir mig og eigðu yndæla nótt ljúfan.

Tiger, 17.4.2008 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband