13.6.2008 | 10:54
Ljúfust
Já þessi elska var hér fyrir utan gariðinn í fyrradag og veitti ég því athyggli að bræðurnir voru að rífast þar sem að litli stubburinn orgaði og grenjaði. Nú svo það var ekki komist hjá því að kíkja út til að athuga hvað gengi á. Og þetta var í gangi.
Litli Maðurinn var í vetlingum svo að það festist ull við hann og framaní honum og allt í volli. Nú svo var rifist um hvor ætti að klappa henni.
Nú þegar búið var að ná ullinn af litla manninum þá lék allt í lyndi og var knúsast í dágóða stund þarna úti.
Nú svo þegar Ljúfust hafði fengið nóg þá kallaði hún á börnin sín og gaf þeim að súpa.
Strákarnir fóru út í fjárhús en.... sá Stóri hljóp á undan litla Manninum svo hann fór að grenja og viti menn Ljúfust jarmaði og hljóp af stað á eftir þeim. Jamm til að hugga litla manninn sinn....

Nú á seinni myndinni sjáið þið vel hvar ég bý.
Athugasemdir
Hún Ljúfust er þá ljúfust, við litla manninn.
Eldri stelpan mín á einmit ,,vinkonu" þær knúsast alltaf og kjassast þegar sú stutta kémur í fjárhúsið. Sem er ekki sjaldan.
Þórhildur Daðadóttir, 13.6.2008 kl. 11:11
Æ hvað þetta er fallegt og þetta frjálsræði sem börnin hafa.
Knús til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.6.2008 kl. 13:00
æ hvad thetta var ljúft oh hvad hlýtur ad vera gaman ad alast upp í sveit.. góda helgi min kæra
María Guðmundsdóttir, 13.6.2008 kl. 16:38
Yndislegar myndir og fallegarknús knús og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.6.2008 kl. 23:23
Gráa húsið með rauða þakinu er við Brúarskála, ekki satt?
Ertu þá við Borðeyri eða þar um kring? Ein þokkalega forvitin.
Anna Guðný , 14.6.2008 kl. 01:18
Gráahúsið er Símstöðin í Brú. Satt.
Ég er þar um kring. Jammm......
Og eina og Milla sagði hér neðar (í kommenti) þá skil ég hana vel að hafa sótt í að stoppa þarna. Það eru margir sem hafa hellst úr lestinni af fastakúnnunum síðan ég flutti hingað norður. En ég var að vinna í Brú. Nú er það bara kallinn sem vinnur úti þar sem að börnin taka sinn tíma.
Knús á ykkur!
JEG, 14.6.2008 kl. 10:40
Var búin að gleyma að þetta hafi verið símstöð. En nú er ég nokk búin að staðsetja þig. Stoppaði á Brú á leið norður, hefði verið gáfulegra að kíkja í kaffi til þín. En er þá málið að nýji vegurinn komi nær þér?
Anna Guðný , 14.6.2008 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.