Björn......!

Í þessu lífi er ég kona.

Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði.Ég gæti lifað með því.

Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líka lifað með því

Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt.
Ég gæti sko alveg lifað með því

Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara.
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka.
Ég gæti lifað með þessu

Ef þú ert birna þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn!!!

Svo er bara að muna að óska eftir að vera ekki hvítur björn og að álpast alls ekki til Íslands ;)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Gæti alveg lifad med thessu lika usss,nú er bara ad bida og vona og já..sem thú segir, alls ekki ad verda hvítabjørn á leid til íslands eigdu góda viku

María Guðmundsdóttir, 15.6.2008 kl. 15:05

2 Smámynd: Guðrún Anna Frímannsdóttir

Ég,líka,haha

Guðrún Anna Frímannsdóttir, 15.6.2008 kl. 19:16

3 Smámynd: Renata

hehehe...fábært, pant í næsta lífi að vera birna :)

Renata, 15.6.2008 kl. 19:47

4 Smámynd: Guðrún Anna Frímannsdóttir

Hæ stal af stráknum lylkaborðinu hann er ekki heima. Þekkumst við eitthvað? kanast svo við börnin þín . Kveðja úr Kefló

Guðrún Anna Frímannsdóttir, 16.6.2008 kl. 00:37

5 Smámynd: Tiger

Ussuss ... ég gæti ekki lifað með svona bjarnarkerlingu sko! Ég vakna alltaf glaður en ekki urrandi - og ég vil hafa fyrir því að "stálpa" ungana. En, það væri samt gott að geta legið í dvala um stund sko ...*flaut*.

Knús á þig ljúfan og eigðu góða viku framundan.

Tiger, 16.6.2008 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband