Nokkrar fyndnar staðreyndir

Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.
Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu. Ég læt hugann reika... en stundum yfirgefur hann mig
Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.
Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.
Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.
Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur
Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.
Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.
Undarlegt! Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!
Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og: "Veistu, stundum bara gleymi ég að borða." Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, En ég hef aldrei gleymt að borða. Hvílík heimska: að gleyma að borða!
Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn, en henni er eiginlega alveg sama.
Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.
Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: að borða of mikið, kaupa það allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt. Er ekki í lagi með þetta lið? Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.
Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.
kynjamunurinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

"hitinn af læranúningnum kveikti i sokkabuxunum! "  knus á thig..

María Guðmundsdóttir, 17.6.2008 kl. 04:45

2 Smámynd: Anna Guðný

Ég hef nú ekki kveikt í sokkabuxunum en nokkru sinnum í lærunum

Eins gott að ég er hætt að eignast börn.

Yndislegir punktar og svo mikið til í sumum þeirra , eins og t.d. bara myndinni þarna í restina.

Anna Guðný , 17.6.2008 kl. 10:50

3 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

heheh sniðugt hjá þér skvísa :) já ég helt að það myndi kveikna í löppunum á mér í gær og lærunum svo ég skil þetta

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 17.6.2008 kl. 16:01

4 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

 Alveg brilljant!!!

Þórhildur Daðadóttir, 18.6.2008 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband