Tilviljun eða ....?

  Amerískur kall

frábært

Hæ hæ elskulegi eiginmaður.


... Áður en þú kemur heim úr viðskiptaferðinni vil ég bara láta þig vita um smá óhapp sem varð hér heima. Ég vil samt taka fram að það er allt í lagi með mig og ég er alveg ómeidd, svo þú hafir ekki óþarfa áhyggjur.

 Málið er að þegar ég var að koma heim úr búðinni í gær á stóra pallbílnum og var að beygja inn í innkeyrsluna varð ég fyrir því að, í stað þess að stíga á bremsuna, steig ég óvart á bensíngjöfina. Bílskúrshurðin beiglaðist dáldið en það sem verra var að antik-Ferrariinn þinn, sem ég veit að þú heldur svo mikið uppá, beiglaðist dáldið mikið þegar pallbíllinn stoppaði uppá honum.Ég ætlaði að reyna að rétta hann aðeins og eina sem ég fann til þess voru nýju flottu golfkylfurnar sem þú lést sérsmíða fyrir þig. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því hvað væri veikt í þeim, en þær bara beygluðust líka.
 
Þá hugsaði ég með mér að reyna að bæta fyrir þetta allt með því að hafa allavega allt hreint og fínt þegar þú kæmir heim svo ég ákvað að þvo öll nýju sérsniðnu jakkafötin þín. Þú manst, þessi gráu voru með oggolitlum sósublett á innanverðum jakkanum og þessi grænu voru pínu krumpuð á innanverðu fóðrinu. Því miður tókst ekki betur til en svo að ég setti þvottavélina óvart ásuðu svo öll fötin þín hlupu um tvö númer. Elsku vinurinn minn, ég bara vona að þú fyrirgefir mér þennan klaufaskap, þetta var bara röð óhappa.

... Hlakka mikið til að fá þig heim,
 
... þín eiginkona XXX
 
P.S. ... Ó,,já og kærastan þín í Frakklandi hringdi....


hahahaha.....skiljið þið sneiðina...röð óhappa... með (ó)viljandi hendi.....;)

Skjáumstum sæta fólk

hjarta bangsi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já ætli madur væri ekki búin ad beygla eitt og annad i  svona stødu sko thadheldégnú....og liklega gott betur en thad...

knus i daginn thinn...eda kvøldid altsá

María Guðmundsdóttir, 1.7.2008 kl. 17:35

2 Smámynd: Tiger

 Hahaha .. brilljant. Auðvitað var þetta allt saman óvart, nema hvað. Látum bara vera þó einhver glyðra hafi hringt frá Frakklandi - frúin gerði þetta allt óvart sko - það er mín skoðun.

Knús á þig sweetypie-ið mitt .. :)

Tiger, 1.7.2008 kl. 18:01

3 Smámynd: Anna Guðný

Góður

Anna Guðný , 1.7.2008 kl. 23:19

4 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

hihihihih akkurat :D geggjað góð færsla :) ég hafði gaman að þessu

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 2.7.2008 kl. 03:25

5 Smámynd: Tína

Tær snilld ! Veistu að ég eyddi nánast öllu föstudagskvöldinu í hláturskasti yfir blogsíðunni þinni  En þetta var flest hvert öðru fyndnara þannig að ég gat ekki hætt að lesa fyrr en ég var búin með ALLAR færslurnar þínar .

Eigðu góðan dag krútta

Tína, 2.7.2008 kl. 08:48

6 Smámynd: Guðrún Anna Frímannsdóttir

Hæ hæ norðu á land. Hérna er nú ekki svo gott veður þessa dagana og harðneitta ormarnir að fara út að leika.. Spurnig að senda þau út með fötur að leita að hinum ormunum fyrir veiðina í sumar haha . Þú ert algjör penni og frábært hvað þú ert dugleg að setja hérna inn skemmtilegt lesefni sem hægt er að hlæja af. Knús úr Kefló

Guðrún Anna Frímannsdóttir, 2.7.2008 kl. 12:51

7 Smámynd: Renata

hihihi....

Renata, 2.7.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband