15.11.2008 | 17:03
Ást - Losti - Hnapphelda
Ást: Þegar þið farið í freyðibað saman.
Losti: Þegar þið farið í bað fyllt af hlaupi.
Hnapphelda: Þegar þið baðið afkvæmið.
Ást: Rómantískur kvöldverður við kertaljós.
Losti: Verð ég að kaupa matinn fyrst?
Hnapphelda: Fjölskyldutilboð á McDonalds.
Ást: Að gefa ástinni sælgæti.
Losti: Þú ert sjálft góðgætið.
Hnappheldan: Að skrapa sælgætið barnsins af gólfinu.
Ást: Kynlíf hvert kvöld.
Losti: Kynlíf fimm sinnum á nóttu (eða degi??).
Hnappheldan: Hvað er kynlíf?
Ást: Kvöld í leikhúsinu.
Losti: Kvöld á mótel Venus.
Hnappheldan: Kvöld á vídeóleigunni.
Ást: Franskt ilmvatn.
Losti: Grófur rakspíri.
Hnappheldan: Það þarf að skipta á barninu
Ást: Að lána elskunni þinni jakkann þinn.
Losti: Ég veit hvernig við getum haldið á okkur hita
Hnappheldan: Unglingsdóttir þín hefur fengið alla jakkana þína lánaða.
Ást: Tala og knúsa.
Losti: Rúlla sér á hina hliðina og steinsofna.
Hnappheldan: Að fara framúr til að þvo sér um hendurnar.
Ást: Langar ökuferðir í sveitinni.
Losti: Löng viðdvöl á útsýnisstað.
Hnappheldan: Langar ökuferðir með grenjandi börn í aftursætinu.
Athugasemdir
er thetta rétt eda er thetta rétt??????
ómæ... snillin thinn ad grafa upp svona spakmæli sko..! ætla samt ekkert ad láta uppi hvar ég lendi i "flokkunum"
en hva..auddad er madur ekkert BARA i hnappheldunni sko...
en góda helgi til thin elskulegust
hafid thad sem best i sveitinni ...hvernig er thad..snjóar hjá thér núna??
kreist og kram hédan
María Guðmundsdóttir, 15.11.2008 kl. 18:53
Ég lifi fyrir það að finna svona brilljant djók og gamanmæli.
Já það er búið að snjóa smá og svo skafa og élja meira og blása á það. Þannig að það er allt í gangi hehehehe..... Knús back to you. 
JEG, 15.11.2008 kl. 19:57
Kvitt og knús til tín, krúttid mitt.
(fæ ekki islensku stafina til ad virka
...tad er svona ad eiga *danska* tölvu)
SigrúnSveitó, 16.11.2008 kl. 08:58
Kann ágætlega við mig í hnappheldunni.....
Guðrún Una Jónsdóttir, 16.11.2008 kl. 09:37
Ég held ég sé hreinlega búin að fara hringinn og sé að byrja á honum aftur. Börnin eru hver á fætur öðrum að týnast burt og svona
En þessi færsla þin er auðvita bara snilldin ein.
Knús inn í helgina þína kæra vinkona og takk fyrir að koma alltaf brosinu fram á varir manns
Tína, 16.11.2008 kl. 10:19
Veistu Tína það er einmitt tilgangurinn .......s.s. tilgangnum er náð ef þið hafið gaman af þessu
En það er líka svo gaman að svona spakmælagríni.
Knús og kveðja á ykkur
JEG, 16.11.2008 kl. 10:52
ahahaha... frábært.... og stemmir alveg til síðasta punkts...... en ég segi eins og Tína... maður getur farið hringinn.... og kanski jafnvel nokkra hringi.... sjálf er ég á öðrum hring.... og er að fíla það.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 16.11.2008 kl. 13:12
Segi það .. hvað er kynlíf .. þegar í hnapphelduna er komið ... muhaha!
Auðvitað gengur ekkert upp nema fólk hlúi stanslaust að ástinni og hvert öðru - sameiginlegt átak er það eina sem virkar og viðheldur stanslausu kynlífi ... ehhh ... stanslausri ást meina ég ... hahaha!
Stanslaust knús og meira kram á þig skutlan mín ... góða viku framundan!
Tiger, 16.11.2008 kl. 14:38
innlitskvitt mín kæra, hahaha...góður byrjun á mánudagsmorgni að kíkja á bloggið hjá þér, enda maður verður brosandi til enda dagsins :)
koss og knús
Renata, 17.11.2008 kl. 10:38
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.11.2008 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.