Hvað er ást í hugum ungra barna?


Gefðu þér 3 mín. til að lesa þetta.  Það er alveg þess virði. Fagfólk lagði spurninguna fyrir hóp af 4 – 8 ára börnum, “Hvað þýðir Ást?”

Svörin voru fjölbreyttari og dýpri en nokkurn grunaði. Hvað finnst þér?:  



'Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki

beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel

eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást.'
Rebe
kka 8 ára




'Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi.
Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.'

Billy
4 ára




'Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra

og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl
5 ára



'Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar

sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.'
Chrissy
6 ára



Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri
4 ára



'Ást er þegar Mamma gerir kaffi handa Pabba,og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi.'
Danny
7 ára




'Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira.
Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'

Emily
8 ára



'Ást er það sem er með þér í stofunni á Jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar.'  
Bobby
7 ára
(Vaá!)

'Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikka
6 ára

(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)
 


'Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,

og þá gengur hann í henni alla daga.'
Noelle
7 ára  




'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru

enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommy
6 ára


'Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd.

Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá Pabba minn veifa og brosa.

Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur'
Cindy
8 ára




'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.'  

Clare
6 ára



'Ást er þegar Mamma gefur Pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elaine - 5 ára




'Ást er þegar Mamma sér Pabba illa lyktandi og sveittan

og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford.'  
Chris
7 ára



'Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan

eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
Mary Ann – 4 ára
 



'Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér

öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lauren – 4 ára



'Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður

og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen – 7 ára



'Þú ættir ekki að segja “Ég elska þig” nema þú meinir það.

En ef þú meinar það áttu að segja það oft.  Fólk gleymir.'
Jessica – 8 ára



Og að lokum:


4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar.

 

Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: “Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta”

 
 

Það er fyrst þegar ekkert er eftir nema Guð, að við gerum okkur ljóst að Guð er allt sem við þurfum.

Förum með örstutta bæn í huganum fyrir hvort öðru og höldum hamingjusöm og full ástar út í lífið. good_morning-fixb-w500-h500good_morning_730265791_1207997627_1410

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

fékk þennan í gær, hann er alveg bráðnauðsynlegur

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.11.2008 kl. 15:29

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

thessi er frábær  oh krakkar geta verid svo frábær, thad sem kemur ekki uppúr theim stundum.

En hvernig fór svo med kortin?? gastu fundid eitthvad útur thessu?

Hafdu thad sem best min kæra, mundu ad slappa af og hafa thad huggulegt inná milli strída,alltaf gaga ad gera hjá thér  kreist og kram i sveitina

María Guðmundsdóttir, 20.11.2008 kl. 16:24

3 Smámynd: JEG

Þessi er alger snilld.  Kortin já ég er að flakka á milli síða og reyna mitt besta til að skilja og bögglast við að gera þetta.  Er núna á Pohtobucket en þar er ég með nokkrar myndir og fór að skoða síðuna betur og þá er svona kortadæmi þar en ég er enn að bögglast þar.  *hóst* já mikið væri nú næs að vera betri í ensku   Nú ef ég gefst upp verður bara mynd í kort eins og venjulega hehehehe...... 

Já maður verður að fara að taka smá slökun á kvöldin allavega annars er maður að úrbeina og svona eitt og annað sem kemst upp að hefur verið trassað  .....  eins og þrif *hóst*  en það saxast á þetta og svo getur maður farið að þrífa fyrir jólin og skíta út með skreytingum og seríum í glugga en það er jú alveg út í hött að þrífa fyrir jól..... betra eða ölluheldur gáfulegra að gera það eftir jól.   Eins og með þrif og barnaafmæli hehehe....

Úfff ég er komin með blogg bara *úbsý* 

JEG, 20.11.2008 kl. 17:35

4 Smámynd: Renata

Þessi er alveg krútlegast ever, mér vöknaði um augu að lesa þetta, fallegt, fallegt :)

...eigðu góða helgi krúttið og ekki fara yfir um við heimilisverkið, margir mega ekki missa þig hér á blogginu

Renata, 20.11.2008 kl. 19:20

5 Smámynd: Tiger

  Þetta er alveg frábært! Alveg er það magnað hve börnin eru oft með "fátækleg orð" sem þó segja gersamlega allt það sem hægt er að segja um hlutina! Yndislegt bara og þakka fyrir mig hérna rjómablandan mín ... :)

Knús og kram á þig skottið mitt og hafðu það ljúft og gott í sveitinni!

Tiger, 20.11.2008 kl. 19:31

6 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Alveg ædislegt. Ad hjálpa gamla manninum ad gráta er alveg ótrúlega gott. Fullordnir vilja alltaf hugga. En thad er svo mikilvægt ad geta grátid ef madur er leidur, og í lagi ad vera leidur.

Kær kvedja til thín.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 20.11.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband