Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Aðventulag....

Þeir eru endalaust snillingar blessaðir.

http://baggalutur.is/jol/2008.php

!cid_34D0B199-C6ED-467F-A381-2C1FB3DCD032


OMG þessi blessuð börn.....


Góðar hugmyndir

33713683272p8818
 
Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir  eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega....
 
1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu.  Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir  hægi á sér.
 
2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.
 
3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða  Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
 
4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"
 
5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"
 
6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót
 
7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
 
8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
 
9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
 
10. Ekki nota punkta.
 
11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga
 
12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það  hefur svarað.
 
13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé  "taka með".
 
14. Syngdu með í óperunni
 
15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan  ryþma.
 
16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu  frumskógarhljóð af diski alla daga.
 
17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir  ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
 
18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni  þínu, Rock Hard.
 
19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann!  Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
 
Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í
hversdagsleikanum:
 
20. Sentu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni, líka  þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem hafa sérstaklega  frábeðið sér ÖLL svona bréf.
 
&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸¸·´¯&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸ ><((((º>
 
.¸¸·´¯&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸ ><((((º>
 
Syntu í friði...
 
 good_morning-fixb-w500-h500good_morning_502094046_1204889990_w0106
 
 

Konubrandari.........

Konan fór með vinkonum sínum á barinn eftir vinnu.  
Þær sátu og drukku kokteila þegar hávaxinn, myndarlegur og ótrúlega kynæsandi maður á besta aldri gekk inn á barinn.  

Hann var svo sláandi myndarlegur að konurnar hreinlega gláptu á hann.


Maðurinn myndarlegi tók eftir augnaráði konunnar og gekk beint til hennar (eins og allir karlmenn hefðu gert).


Áður en hún gat beðist afsökunar á því að hafa starað á hann, hallaði hann sér að henni og hvíslaði: "Ég geri hvað sem er, og ég meina algjörlega hvað sem er, fyrir þig, alveg sama hversu kinkí það er, fyrir 2 þúsund kall... með einu skilyrði..."


Konan var algjörlega slegin út af laginu, næstum orðlaus (sem gerist nú ekki oft) en stundi að lokum upp spurningu um hvert skilyrðið væri.  

Maðurinn svaraði: "Þú þarft að segja mér hvað þú vilt í hvorki fleiri né færri en þremur orðum."


Konan íhugaði tilboðið eitt augnablik, dró síðan tvo þúsundkalla upp úr veskinu sínu, þrýsti þeim í lófa mannsins, ásamt heimilisfanginu sínu, horfði svo djúpt í seiðandi augu hans og sagði hægt en ákveðið...




...."Þrífðu húsið mitt"


Konur eru engir kjánar ;)
 

friendshipday-fixb-w500-h500friendshipday_631976669_1217454811_THE_WOMAN__


Tæknifrjóvgun......!

Þessa dagana eru bændur í óðaönn að sæða rollurassana sína.....og þar á meðal við.  Sem þýðir það að farið er með einn hrút í bandi og hann leiddur um krærnar og "þefa" uppi rollurassa sem eru að blæsma......já s.s. til í tuskið ......nema hann færi ekki að tuska þær neibb......bara þefa.  Skepnuskapur .......ja kannski.  Svo þegar búið er að finna nógu marga rassa sem eru í stuði er byrjað að "sæða".  Þá er það "töskuhrúturinn" eða kannski væri "brúsahrúturinn" meira viðeigandi þar sem sæðið er geymt í köldu vatni í hitabrúsa.  En þetta "tösku" tal er nú frekar notað þegar verið er að sæða kýr.  En þá er talað um "töskutudda" svona til að hafa þetta stuðlað.  En það er frekar flókið að stuðla hrúta.....heheheh.....  En allavega þá bý ég svo vel að þurfa ekki að kaupa þessa þjónustu því faðir minn er með réttindi til að sæða rollurassa.  Og á til þess gerðar græjur......sem er einkar hentugt.  Nú svo er bara að vona að hrútagreyin verði ekki þunglyndir á því að fá bara að horfa og þefa.  En það styttist jú í að þeir fá að ota sínum tota því hleypt verður til uppúr 10. des. og hefst þá fjörið......og stendur fram í janúar.....!

Annars er allt í góðu bara.  Snjór og skítakuldi.  Alveg eins og uppskriftin segir.  Bakað 2 sortir á sunnudaginn rétt svona til að geta sagt að ég væri búin að baka "smá"kökur og fyrir valinu urðu piparkökurnar (sem verða ekki skreyttar bara étnar) og marmaraspesíur. 

En nú er víst rétt að fara að setja sig  í stellingar og vera viðbúinn því að ráðunauturinn hringi og tilkynni að sæðið sé komið því það þarf að sækja það í Staðarskála.

Caio.

frosin tunga 


Nú er Hitler brjálaður......


Sveitagrín

Almannarómur í sveitinni

Hún gerði það ágætt hún Guðmunda.
Hún gerði það fyrst undir Ámunda.
Svo með Helga og Tý
svo með Helga á ný
og svo með hljómsveit sem stödd var í námunda.

Hún Ingveldur gamla frá Engi.
Hún ei hafði fengi´ða lengi.
En á leið heim af engjunum
hún lent´undir drengjunum
og lá svo í mánuð með strengi.

Það er almenningsálit í sveitinni
að ást séra Marteins á geitinni
megi hreint ekki lá,
þegar litið er á
hversu lík hún er Jórunni heitinni.

Jóhann S. Hannesson



Einn piltur úr Fjöllunum fannlausu
komst í færi við Hallfríði mannlausu.
Þá brjálaðist gellan
og beit hann í sprellann,
nú tekur hann bara þær tannlausu.

Höf: Björn Ingólfsson

friendshipday-fixb-w500-h500friendshipday_722776573_1216403758_flower


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband