Í takt við tíðarandann.....

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".


good_morning-fixb-w500-h500good_morning_724028813_1205453657_morning6


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Renata

Góður þessi :)

svolítið erfitt að lesa ljósbláatexta á hvítum bakgrunn

hafðu það gott í kvöld í sveitasælunni!

Renata, 25.11.2008 kl. 17:12

2 Smámynd: JEG

Búin að laga það

JEG, 25.11.2008 kl. 17:19

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 Laughing 1ómægod....BARA gódur!!!!!!! takk fyrir fruss dagsins 

vonandi hefurdu gott kvøld,knus og kram i sveitina 





María Guðmundsdóttir, 25.11.2008 kl. 19:12

4 Smámynd: SigrúnSveitó

haha, góður!!

Og yndislegur vinamoli.

Skagaknús í sveitina

SigrúnSveitó, 25.11.2008 kl. 19:56

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús og góða nóttina elsku ljúfa

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.11.2008 kl. 23:22

6 Smámynd: Anna Guðný

ææ

Hafðu það gott ljúfan

Anna Guðný , 25.11.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband