Grái fiðringurinn.

Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:

 “Heyrðu elskan – fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum

á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju

kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.”

“Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og

50 tommu flatskjá – en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið

með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !

Ég verð samt að játa að ég á skynsama konu”.

Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:

“Ekki vandamálið : Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu !

Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !”

 

Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!

rofl


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Góður, verð að stela þessum og setja inn hjá mér.

Hafðu það gott um  helgina Jóna mín.

Anna Guðný , 20.3.2009 kl. 12:47

2 Smámynd: Renata

hahahaha...góður þessi, takk fyrir brosið :)

góða helgi krútt

Renata, 20.3.2009 kl. 14:33

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 fila thessa konu sko! hafdu góda helgi min kæra,knús i kot

María Guðmundsdóttir, 20.3.2009 kl. 15:43

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur .0)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.3.2009 kl. 17:54

5 Smámynd: Guðrún Anna Frímannsdóttir

Guðrún Anna Frímannsdóttir, 21.3.2009 kl. 19:02

6 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

Góð :) ég er ekki einusinni orðin það gömul :)

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 22.3.2009 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband