Hvað segja stjörnumerkin um þig?

 

Fiskurinn (20. febrúar - 20. mars)

Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og “fókusera” á eitt ákveðið. Hann er of stórhuga.

Vatnsberinn (21. janúar - 19. febrúar)

Hinn dæmigerði Vatnsberi er yfirleitt rólegur, vingjarnlegur og þægilegur í framkomu. Hann er yfirvegaður og viðræðugóður en hleypir fólki samt sem áður ekki of nálægt sér. Hann er oft á tíðum heldur dularfullur eða a.m.k. fjarlægur. Að minnsta kosti finnst öðrum oft erfitt að átta sig á honum. Ein ástæða fyrir þessu er sú að hann er frekar ópersónulegur og lítið fyrir að ræða um sjálfan sig og bera tilfinningar sínar á torg.

Steingeitin (22. desember - 20. janúar)

Steingeitin er jarðbundin og leggur áherslu á að ná áþreifanlegum árangri og standa traustum fótum í tilverunni. Ef hún ákveður að gera eitthvað vill hún láta athöfn fylgja orðum. Hún er raunsæ og sér heiminn eins og hann er, en er tiltölulega laus við óskhyggju.

Bogmaðurinn (22. nóvember til 21. desember)

Eitt sterkasta einkenni Bogmannsins er fróðleiksþorsti. Hann vill kynnast heiminum, þráir þekkingu og vill hafa yfirsýn yfir margvíslegustu málefni. Hann nýtur þess að ferðast, læra og fást við verkefni sem víkka sjóndeildarhring hans

Sporðdrekinn (23. október - 21. nóvember)

Sporðdrekinn er tilfinningaríkur og frekar varkár. Að öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er kjarnyrtur og hreinskilinn og lítið fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur og tekur tilfinningar og líðan annarra inná sig. Hann heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Hann vill kafa djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar hann er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að ræða hvað sem er. Sporðdrekinn getur því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.

Vogin (24. september - 22. október)

Til að skilja Vogina þarf að horfa á ‘tákn’ merkisins, vogina sem hefur það hlutverk að vega og meta (uppskeruna). Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi og því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin. Fyrir vikið er Vogarfólkið stundum eftirgefanlegt, stundum hart, stundum ljúft, stundum ákveðið. Þetta er leit að jafnvægi, að ‘balance’. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast frá einum pól til annars og eru ‘brokkgengar’ eins og einn ágætur maður sagði.

Meyjan (24. ágúst - 23. september)

Hin dæmigerða Meyja er jarðbundin og raunsæ. Hún hefur sterka rökhugsun og sérstaka hæfileika og áhuga í sambandi við viðskipti, miðlun, menntamál og þjónustustörf. Meyjan er iðulega dugleg og iðin og á oft erfitt með að sitja kyrr og slaka á. Sumar Meyjur taka til dæmis aldrei frí eða fara að vinna eitthvað annað í fríinu og fá samviskubit ef þær hafa ekki eitthvað fyrir stafni. Oft er Meyjan eirðarlaus og þá einkennist framkoma hennar af hreyfanleika, málgefni og vissu stressi.

Ljónið (23. júlí - 23. ágúst)

Ljónið er yfirleitt hreint og beint í framkomu og falslaust. Það hefur tilhneigingu til að draga að sér athygli og lenda í miðri hringrás atburða. Ljónið sækir oft í störf sem gera það áberandi, eða eru þess eðlis að það verður að þungamiðju umhverfisins.

Krabbinn (21. júní - 22. júlí)

Krabbinn er varkár og frekar hlédrægur um eigin hagi, en eigi að síður fastur fyrir og ákveðinn þegar á þarf að halda. Hann býr yfir hæglátri seiglu og er séður og útsjónarsamur. Varkárni Krabbans birtist þegar hann er að skoða ný mál. Hann opnar dyrnar til hálfs og tekur eitt skref fram á við til að kynna sér aðstæður. Síðan tekur hann tvö skref afturábak, dregur sig í hlé og skoðar málið í rólegheitunum. Hann vill hafa vaðið fyrir neðan sig og þreifa sig áfram. Það getur því tekið langan tíma að kynnast honum og þótt hann sýni áhuga bítur hann ekki endilega strax á agnið. Þegar hann hefur hins vegar tekið endanlega ákvörðun um að ganga í ákveðið verk berst hann með kjafti og klóm og gefst ekki auðveldlega upp.

Tvíburinn (22. maí - 20. júní)

Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni. Honum líður best þegar mikið er um að vera og þess er krafist að hann sinni mörgum verkefnum á sama tíma. Honum leiðist vanabinding og hann verður þreyttur ef hann þarf að fást of lengi við sama verkið. Fjölbreytni og hreyfing eru honum nauðsynleg til að viðhalda orku. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er ein uppáhaldssetning hans: “Ég þarf aðeins að skreppa.”

Nautið (21. apríl til 21. maí)

Í samræmi við vorblíðuna er Nautið að öllu jöfnu gæflynt í skapi. Það trúir á lífið og sér ekki ástæðu til annars en að menn lifi í sátt og samlyndi. Það vill stunda vinnu sína, eiga gott heimili og sinna áhugamálum og félagslífi, og vill jafnframt láta aðra í friði með sitt.

Hrúturinn (20. mars til 20. apríl)

Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

Ég er reyndar vog - þó hér lendi dagurinn minn, 23sept, í meyju. Reyndar eiga bæði merkin hérna mjög vel við mig, svo ég er bara vel sáttur sko! Eigðu ljúfan dag og njóttu sólar í kuldakastinu...

Tiger, 30.4.2008 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband