Læknisferðin.

Kona kemur til læknisins með 16 ára dóttur sína.

“Jæja, frú Rósa,” segir læknirinn, “hvert er vandamálið?”

“Það er varðandi dóttur mín, hana Döggu, hún er alltaf að fá þessa fíkn í vissar matartegundir, fitnar og er stöðugt með ógleði á morgnana.”

Læknirinn skoðar Döggu vandlega og snýr sér svo að móðurinni og segir:

“Ja, ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að segja þér þetta, en málið er það að Dagga er ófrísk - ég giska á að hún sé komin 4 mánuði á leið.”

“Ófrísk?!” svarar móðirin, “það getur ekki verið. Hún hefur aldrei nokkurn tíma verið skilin ein eftir með karlmanni! Er það nokkuð, Dagga?”

“Nei, mamma,” svarar Dagga. “Ég hef ekki einu sinni kysst karlmann!”

Læknirinn gengur út að glugganum og starir rannsakandi út um hann. Það líða nærri fimm mínútur án þess að hann segi nokkuð, svo móðirin spyr:

“Er eitthvað að þarna úti, læknir?”

“Nei, í rauninni ekki,” svarar hann. “Bara það að þegar svona nokkuð gerðist síðast þá birtist stjarna í austrinu og þrír vitringar komu yfir hæðina. Það er sko á hreinu að ég ætla ekki að missa af því núna!”

hlæjandi pooh


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 gódur..haha...

eigdu nú góda helgi í sveitinni, knus  og krammar hédan frá Mørkinni

María Guðmundsdóttir, 15.8.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Tiger

  Hahaha .. jamm hann er góður þessi. Enn ein Jesú fæðingin sko ...

Knús á þig duglega sultugerðarkona! Hafðu ljúfa helgi elskulegust - og jamm - myndin er af mér náttúrulega.

Tiger, 15.8.2008 kl. 13:41

3 Smámynd: Renata

frábært þessi :)

eigðu góða helgi sæta...

Renata, 15.8.2008 kl. 14:29

4 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

 GÓÐUR!!!

Þórhildur Daðadóttir, 15.8.2008 kl. 15:28

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

In LoveInnlitskvitt og ósk um góða helgi

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.8.2008 kl. 18:18

6 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Alveg frábær. Góda helgi og hafdu thad sem allra best.

kær kvedja frá Frederikssund.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 15.8.2008 kl. 21:04

7 Smámynd: SigrúnSveitó

góður!

SigrúnSveitó, 15.8.2008 kl. 22:45

8 Smámynd: Tína

 Ég var orðin nokkuð spennt að vita hvernig þessi myndi enda, en ekki átti ég vona á þessu!!! Bara góður sko.

Eigðu ljúfa helgi fallegust og takk fyrir falleg orð á síðunni minni. Þér að segja að þá dauðlangar mig orðið að knúsa þig í ræmur.

Tína, 16.8.2008 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband