Kannski ....


                             


Þesssi saga heitir kannski ....

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.
 
Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.
 
Kannski er bestu vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.
 
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.
 
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.
 
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.
 
Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.

Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.

Það er mikið til í þessari sögu.
Skjáumstum sæta fólk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Svo mikill sannleikur í þessu hjá þér elsku vinkona. Maður verður að venja sig á og gefa sér tíma til að sjá hlutina öðruvísi en maður er vanur. Það er nefnilega ástæða fyrir öllu.

Takk fyrir þetta fallegust. Eigðu ljúfa helgi sem situr svo eftir með fullt af góðum minningum handa þér.

Tína, 22.8.2008 kl. 09:21

2 Smámynd: Anna Guðný

Sammála Tínu, mikill sannleikur í þessu.

Hafðu það gott um helgina ljúfan.

Anna Guðný , 22.8.2008 kl. 12:26

3 Smámynd: Anna Guðný

Vel á minnst, stel þessu og set inn hjá mér.

Anna Guðný , 22.8.2008 kl. 12:27

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 22.8.2008 kl. 14:55

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 gód lesning. Góda helgi i sveitinni.

María Guðmundsdóttir, 23.8.2008 kl. 11:27

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

mmmmm notaleg lesning..og hverju orði sannara......

Takk fyrir bloggvináttuna...

Fanney Björg Karlsdóttir, 23.8.2008 kl. 12:39

7 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk, elska þessa lesningu.

Knús.. 

SigrúnSveitó, 23.8.2008 kl. 12:46

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu kveðjur til þín elskulegust og takk takk alltaf fyrir falleg og hlý orð í minn garðþú ert bara yndisleg og skemmtileg

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband