19.1.2009 | 15:40
Gobblingar.
Nú er búið að taka undan merunum .....eða þeim sem komnar eru af fjalli. En það vantar nokkur hross ennþá sem eru einhverstaðar lengst í rassgati. Og þar eru 2 folöld. Greyin er nú dáldið hnjúskótt þar sem veðráttan hefur ekki verið hin besta í haust og vetur .....endalausir umhleypingar og það fer jú illa í hrossin.
Núna voru kallarnir að fara upp á sleðum til að svipast um eftir þessu hrossum sem vantar. Það er nú vonandi að þeir finni allt á lífi sem vantar því það sást til 4 trippa efst í girðingunni við ánna og það er aldrei að vita hvað þessum kjánum dettur í hug. En girðingin er jú svo stór að það er nóg pláss til að dvelja á.
Þessi hefur fengið nafnið Von og er undan aðalmerinni sem kallinn á.
Athugasemdir
Falleg er hún og fallegt nafn. Gangi ykkur vel að ná þeim af fjalli. Alltaf leiðinlegt að finna ekki dýrin.
Hafðu það gott ljúfan
Anna Guðný , 19.1.2009 kl. 15:50
Þeir fundu hrossin og þau voru í 2 hópum. Trippin 4 saman lengst í rassi upp í horni. Og merarnar og fleirri á öðrum stað. Þeir komu með þetta niður en svo hljóp allt upp aftur þar sem hrossin á næsta bæ eru svo hrædd við sleðana. Hér eru þau vön Sexhjólinu og því rólegri. En við vonum að þau komi niður aftur þar sem þau vita nú af rúllunni. Annars verður bara að sækja þau aftur.
JEG, 19.1.2009 kl. 17:41
falleg og já, fallegt nafn. Gott thid fundud thau, vonandi skila thau sér aftur greyin.
Hafdu thad gott i sveit skvís, knús og krammar hédan
María Guðmundsdóttir, 20.1.2009 kl. 07:48
Fallegt nafn á fallega litla hryssu...
Hafðu það gott í sveitinni :)
Renata, 20.1.2009 kl. 12:48
Vona að hrossin finnist. Von er fallegt nafn og á vel við á þessum síðustu og verstu tímum. Kveðjur úr hjarta Norðurlands .
Guðrún Una Jónsdóttir, 20.1.2009 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.