6.2.2009 | 11:39
Afmæli framundan.
Jæja þá líður að því að frumburðurinn verði 9 ára eða þann 9 feb. og stendur til að halda smá teiti á sunnudaginn fyrir hann. Ekki ætla ég nú að keppa við kellurnar í sveitinni með hlaðborðið .......enda á ég bara lítið borð fyrir veitingarnar svo það setur manni smá línur hvað varðar úrval og magn. Var drengurinn því spurður hvað hann vildi hafa af veitingum í sínu afmæli ......þetta er jú hans dagur og til hvers að hafa fullt af tertum sem krakkarnir ekki borða.......? Þetta er krakkaafmæli og því bera að stíla inn á þeirra smekk ekki satt. En allavega þá valdi hann nkl það sama og ég hafði hugsað mér að hafa. Þannig ég slepp vel hvað varðar bakstur. Þarf ekki að baka nema 1 köku ....afmæliskökuna sjálfa hitt verður allt kalt, sætt eða heitt. Það sem þarf þá bara að einbeita sér að í staðinn er að taka til og þrífa ........hummmm eins og það sé eitthvað skemmtilegra hahahahaha.....ónei. En verður að gera engu að síður. Svo nú skal bretta upp ermar.......eða þannig .......slepp vel alltaf í stutterma hihihihihi...... En einn gamall og góður til að lesa þar til næst.
Ætli það geti verið að þetta eigi við "fjárglæframenn" Íslands?
Að bera fé: Afklæða kind
Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap
Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur
Fégirnd: Afbrigðileg kynhneigð ( Að girnast sauðfé)
Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
Féhirðir: Smali
Félag: Lag sem samið er um sauðfé
Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
Félegur: Eins og sauður
Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
Fjárdráttur: Samræði við kind
Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé
Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé
Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé
Fjármagn: Þegar margar ær koma saman
Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm- Tóndæmi
Fjármálaráðherra : Yfir smali
Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda
Fjárnám: Skóli fyrir kindur
Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beitt fyrir plóg
Fjársöfnun: Smalamennska
Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin
Fjárvarsla: Það að geyma kindur
Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum
Fjáröflun : Smalamennska
Lifið heil og njótið.
Afmælisbarnið.
(ekki ný mynd)
Athugasemdir
já veistu ég er alveg komin á sama system med krakkaafmæli, bara i bodi thad sem krøkkum finnst gott,enda theirra partý..thad var i thá daga ad madur var med svoleidis hnallthórurnar og whatnot af thvi thad voru einhverjir fullordnir lika..ussumfruss..bara sleppa thessu..meira ad segja sleppa thrifunum lika..tekur thvi ekki..bara taka til og svo thrifa á eftir thvi gormarnir koma til med ad sóda allt út.. en gangi thér vel med allt saman, myndardrengur sem thú átt, til hamingju med hann ef thú bloggar ekki meira fyrr en eftir afmælid psss, ekki vitlaus ordabókin hjá thér knús og kram i sveitina
María Guðmundsdóttir, 6.2.2009 kl. 15:41
Ég sosum er nú ekki að gera einhver megaþrif en svona þurrka af og sonna .....ágæt ástæða að lyfta tuskunni og sveifla nokkra hringi Bóna sko ekki enda sullast hellingur niður en rek Kalla könguló út og draslinu hans ásamt kanínubörnunum Svo ef að fullorðnir mæta verða þeir bara að sætta sig við veitingarnar.....nú ef ekki þá geta þeir bara borðað heima hjá sér hahahahaha......
En jæja best að klára að hrista úr tuskunni
JEG, 6.2.2009 kl. 16:19
Gangi ykkur vel í barnaafmælinu og til hamingju með prinsinn sem brátt verður níu. Þetta er skemmtilegur aldur. Kveðja frá fyrrum fjármálaráðherra á Jökuldal : )
Guðrún Una Jónsdóttir, 7.2.2009 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.