Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
19.5.2008 | 17:30
Tókst að skrúfa fyrir :)
Ég var fairn að örvænta með að fá sól og blíðu.
Enda liggja rollurnar flatar í sólbaði. Og það var hægt að hengja út á snúru. Ekki verið hægt hér vegna raka í lofti. Ég er nefnilega þannig að ég nenni sko ekki að vera að hengja út bara til að taka það inn aftur og setja í þurrkarann ...bara fúllt.
Jæja best að útbúa mat handa liðinu. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.5.2008 | 00:50
Skrúfið fyrir rigninguna.
Halló vill einhver skrúfa fyrir regnið það er komið nóg í bili.
Túnin eru svo blaut að það er ekki hægt að bera á einu sinni pifff þetta er bara alveg glatað sko.
Eins er þetta ferlegt að hafa svona mikla vætu vegna litlu lambanna sem þola ekki kuldann og rakann vel. Og rollurnar eiga heldur ekki brjóstahöld með innleggjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.5.2008 | 19:45
Komið á framfæri.
Langar að benda á fyrir vinkonu mína !
Kæru allir!
Sigga vinkona okkar dó úr brjóstakrabbameini þann 14 janúar síðastliðinn, aðeins 4 dögum eftir að hún varð 40 ára.. frá eiginmanni sínum og fjórum börnum þeirra á aldrinum 1 árs til 16 ára.
Sigga barðist hetjulega ..alltaf vongóð ..jákvæð.. og dugleg ..og lifir í hjarta okkar sem sigurvegari þrátt fyrir að hafa þurft að kveðja svona langt langt fyrir aldur fram.
Þau ykkar sem þekktu hana ..eða könnuðust við ..spyrjið oft eða veltið fyrir ykkur ..hvernig gengur fjölskyldunni að fóta sig.. eftir fráfall hennar.
Við vinkonurnar heyrum í og höfum hitt fjölskylduna...
Jón Grétar er nú orðin 17 ára og kominn með bílpróf.. og er í framhaldsskóla
Kata er komin í framhaldsskóla og stundar fimleika af miklu kappi.. hún verður sweet 16 í sumar
Sædís er nýorðin 11 ára stundar fimleika og er afskaplega hjálpleg við þá yngstu
Jakobína Björk ..verður 2 ára í sumar. Hún er farin að æfa sig mikið að tala. Hún er hjá dagmömmu og bíður eftir að komast á leikskóla
Jónas ..sem vinnur við garðyrkju verður 40 í haust.. er að standa sig vel sem einstæður 4-ra barna faðir.. hann hefur forgangsröðina á hreinu ..börnin númer 1..2..og 3! Einnig hefur hann lagt kapp á að klára húsið ..sem þau hjón lögðu svo hart að sér að eignast og gera upp.
Sigga vann með einni ástsælustu leikkonu landsins.. Eddu Björgvinsdóttur og tókst með þeim góður vinskapur. Hefur sú góða kona nú ákveðið að halda styrktarsýningu og allir sem að verkinu koma ..gefa vinnu sína.. og Borgarleikhúsið lánar hús sitt endurgjaldslaust.. verkið er "Brilljant skilnaður" og verður sýningin í Borgarleikhúsinu þann 25 maí klukkan 20:00 miðasala fer fram í Borgarleikhúsinu sími 5688000
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Ragna og Gulla Sigguvinkonur og Edduaðdáendur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.5.2008 | 00:51
Saga dagsins.
Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.
Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína, hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heilsdagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni.
Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið.
Ég borða venjulega hádegismat í "Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða.
Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á
nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.
Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ).
Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum.Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún
þurfi fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.
Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla
tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast. En strákar, ef þið hafið lært það af þessari grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast , lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.
Kveðja,
Jón Jónsson
Athugasemd ritstjóra:
Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi.
Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.
Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi:
Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi
einhvern veginn, án þess að gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)